Babylotion!
Myndir!!!
13.2.2008 05:14:37 / Trukkurinn

Ég um mig frá mér til mín

Nafn: Berglind Óskarsdóttir

Gælunafn: Aðalega Begga en ég er samt kölluð hinum ýmsum nöfnum. T.d. eins og Dússa, Charles, Becks, Bekkus, Beggsen, Lindberg og örugglega eitthver hellingur í viðbót.

Fæðingardagur: 1. ágúst 1987

Augnlitur: Blár

Hárlitur: Skolhærð en er með það litað dökkt.  Reyndar komin með minn lit svolítið aftur.

Skóli: Kvennaskólinn í Reykjavík (besti skólinn á landinu!!) og svo er ég líka í fjarnámi hjá Verzlunarskóla Íslands

Hæð: Úff hef ekki mælt mig í mjööög langan tíma. En síðast þegar ég gerði það Þá var ég 173 cm

Msn: fur_gori@hotmail.com">ofur_gori@hotmail.com

Farartæki: Ég ek um á rauðum Ferrari J

Áhugamál? Frjálsar íþróttir hafa náttúrulega alltaf verið mitt helsta áhugamál enda búin að vera að sprikklast í þeim einhver 12 ár takk fyrir!!! Svo er það bara útivera almennt og hreyfing.  Svo bara að vera í góðra vina hópi og spassast.

Hjúskaparstaða? Ógift og barnlaus...bara eitt stykki kæró J

Framtíðarplön? Haha ég er bara ekki sú týpa sem planar eitthvað langt í framtíðina.  Lifi bara einn dag í einu og nýt þess...en ef ég verð að segja eitthvað þá er það helsta bara að klára stúdentinn í vor, reyna að ferðast eitthvað eftir það og svo bara hella mér í eitthvað æsispennandi háskólanám.  En gifting, börn og heimili!! Úff nenni nú ekki að fara að pæla í því 19 ára gömul!!!! ;)

Helsti kostur? Ég er alveg hræðileg í því að finna kostina mína....en uuu kannski bara það að ég er ávalt hress og fer mjööög svo sjaldan í einhverja fýlu. Það er bara eitthvað fyrir fýlupúka sem ég er alls ekki.  Svo er ég líka alveg ágætis bakari og kann að elda, sem er mjög gott bara uppá framtíðina.

 Helsti galli? Hvað ég er fokk léleg í ensku ;) hehe Ég get líka verið alveg sjúklega þrjósk enda ljón í stjörnumerkinu ;)

Hvaða dagur er í dag? Í dag er miðvikudagurinn 18.október 2006 og 287 dagar þangað til ég verð tvítug!!


Starf? Ég er þræll hjá Hagkaup og er búin að vera það í 4 ár takk fyrir! En ég kvarta samt ekkert undan því. Finnst þetta bara fínt. Vinna einu sinni í viku og aðra hverja helgi.


Draumaprins? Þetta orð er bara til í ævintýrabókunum.


Gæludýr? Hún Bella sæta! Sem er Cavalier King Charles Spaniel voffi....elska hana út í eitt. Annars hef ég átt alveg slatti mikið af gæludýrum í gegnum ævina.... svo er það var ég að fá eitt glænýtt J
Hver fær þig til að hlæja? Ég sjálf og vitleysan sem mér dettur í hug. Annars bara allir vinirnir mínir....ég er alltaf hlægjandi

Hvað áttu mörg pör af skóm? Ég hef bara ekki talið þau...en það er örugglega alveg slatti. Samt bara svona 7-8 pör sem ég nota helst

.
Drekkur þú? Auðvitað drekk ég!!! Annars væri ég bara ekki á lífi...en það er örugglega að vera að meina alkahól og Já það kemur fyrir að ég skáli örlítið með vinum og vandamönnum.


Reykirðu? Neibb!!! Ojjj mesti vibbi í heimi!


Hverju sérðu mest eftir? Að hafa verið svona feimin í grunnskóla, sætt mig við hluti sem ég hefði átt að segja eitthvað við, 23.september 2006.....


Hvað er það versta í heimi? Að vera deyfð 7 sinnum í kjaftinum og þar 4 sinnum við framtennurnar.  Alla veganna er það mesti sársaukinn sem ég hef fundið  En tilfinningalegur sársauki er samt verstur því hann er svo lengi að gróa. En það er allt í lagi með mig núna ;)


Hvað er það besta sem þú getur hugsað þér? Að vera nýbúin á geggjað erfiðri þrekæfingu! Komin heim í heita sturtu og eina sem bíður eftir þér er sjóðheitt kynlíf langt fram eftir nóttu.....haha

 

Besta minning? Benidorm ferðin í sumar mun ég aldrei gleyma!!! Annars á ég alveg endalaust af góðum minningum!

 

 

Hefurðu einhvern tímann:
Strokið að heiman: Neibb, naflastrengurinn var mjööög svo stuttur þegar ég var yngri.  Gat ekki einu sinni farið í æfingabúðir yfir helgi á Laugarvatni. Var komin með heimþrá áður en ég komst út úr Reykjavík.
Valdið einhverjum ástarsorg: Uuuu ekki svo ég viti....
Verið ástfangin: Jújú það hefur gerst....
Grátið þegar einhver deyr: Já
L er það ekki bara eðlilegt!?!
Grátið svo mikið að þér finnst þú aldrei ætla að hætta: Já alveg örugglega....átti mjög erfitt fyrir nokkru.
Logið: Ég segi bara hver hefur ekki gert það?? En oftast er það þá bara saklaus lýi. Eins og að ljúga að kennurunum að netið hrundi heima eða hundurinn át verkefnið mitt.
Setið við símann og beðið eftir símtali alla nóttina: Hahahaha nei!!!!
Óskað þess að þú værir önnur en þú ert: Alveg örugglega....en samt ekkert pælt of mikið í því.
Óskað þess að þú værir karl: Okey mig langar bara að prófa það. Hvernig það er að vera með typpi.  Er annars mjög sátt að vera kona
J
Óskað þess að þú litir öðruvísi út: Jújújú þess hef ég oft óskað mér!

Trúirðu á:
Ást við fyrstu sýn: Æi ég veit ekki alveg....finnst það voða væmið eitthvað!
Guð: Já!!
Stjörnuspár: Les þær og stundum passa þær alveg skuggalega við man.  Annars tek ég nú ekki mikið mark á þeim.
Geimverur: Æi ég veit ekki.....skrifaði 10bls ritgerð í ensku um geimverur og eftir það hef ég forðast sem mest myndir og umræður um þetta. Þannig að nei ég trúi því ekki.
Drauga: Já eitthvað segir mér það að þeir séu til.
Framhjáhald: Ha??? Trúi ég á það? Uuu meina já. Því miður er til fólk sem gerir svoleiðis skandal og má sá aðili brenna í helvíti!

Hvort er betra:
Coke eða Pepsi: Drekk ekki gos....en ef ég verð að velja þá er það Pepsi
Sprite eða 7up: Nota alltaf Sprite í bland ;)
Strákar eða stelpur: Strákar! Stelpur geta svo oft verið miklar dramadósir!
Dökkhærðir eða ljóshærðir strákar: Dökkhærðir!!! Klárlega

Hver:

Fær þig til að brosa: Flestir sem ég þekki...það er voða auðvelt að láta mig brosa.
Kyssir þig: Vignir
Pirrar þig: Dónalegt fólk sem kemur í vinnuna með derring...
Er hæfileiki þinn: Ég hef alveg gífurlega sönghæfileika en hef ekki ennþá þorað að syngja fyrir almenning. 
Er þinn helsti ótti: Að verða feit og geta ekki hreyft mig vegna offitu! Hef svo oft dreymt það!

Myndirðu giftast vegna peninga: ÓNEI!!
Dreymir þig í lit eða svarthvítt: Bæði í bland bara
Hrýturðu: haha alveg örugglega
Hvernig finnst þér best að sofa: Á maganum.
Ertu hamingjusöm: Já ég er bara nokkuð hamingjusöm
Talarðu mikið: Hehe ég á það til að tala svolítið mikið já
J

Hvað gerirðu oftast á daginn: Skóli, æfing, vinna, æfing,læra, skóli,æfing og svo inn á milli reyni ég að hitta vinina og kallinn.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór: Ég ætlaði mér alltaf að verða tannlæknir eða skurðlæknir en ég held að ég sé hætt við það ;)
Kjánalegasta augnablik: Vááá hvar ég að byrja!!?? Ég er alltaf að gera eitthvað kjánalegt. Eitt stórt kjánalegt atvik er bara öll Hagkaupsárshátíðin í fyrra eins og hún leggur sig.  En á henni var mikið um MÖRG kjánalega augnablik.

Hvar er hægt að finna þig? Kvennó, Hagkaup Spöng en aðalega bara einhverstaðar úti að hlaupa eða í frjálsíþróttahöllinni í laugardalnum.

Sumar eða vetur? Klárlega sumar!!!
Hvað hugsaru áður en þú ferð að sofa? Alltof mikið! Stundum það mikið að ég held mér vakandi alla nóttina.

Hvað hugsaru þegar þú horfir í spegillinn? HALLÓ  heita!!!
Í hvernig skapi ertu á morgnanna?
Stundum er ég sjúklega þreytt og er þá ekkert voðalega hress. En um leið og ég er búin að standa upp þá er ég nú oftast frekar hress J
Hvað geriru þegar þú ert ein? Finn mér eitthvað að gera.....dreg upp Þór ;) hehe
Ertu daðrari? Jú ætli það ekki :S

Hvað er klukkan? 14:12
Hver er tilgangur lífsins? Að lifa einn dag í einu og hafa gaman af því að lifa!