|
|
14.01.2008 22:18:53 / Trukkurinn
Jæja nýtt ár komið og ég er búin að vera hræðilegur bloggari hef bara ekkert merkilegt að segja... Búin að vera án alkahóls á djamminu í 5 mánuði og tvær vikur nákvæmlega í dag!! Nei ég er ekki ólétt og komin 5 mánuði á leið ef þið voruð farin að pæla í því ég er á pensinlínkúr og fer vonandi bráðum að hætta á honum. En ekki bara það að ég meiri ekki drekka hefur hann líka áhrif á æfingarnar hjá mér. Jólin og áramótin voru fín hjá mér. Vann auðvitað eins og vitleisingur. En það var alveg þess virði því ég er að fara til Florida eftir 8 daga að VERSLA!!!!! aðeins í sólina og slappa af. Get ekki beðið eftir því að komast aðeins til útlanda. Svo fer ég aftur í mars í æfginabúðir þannig að það eru frábærir tímar framundan. En ég nenni ekki að hafa þetta lengra. En alveg ágætis árangur hjá mér að hafa bloggað
»
26.10.2007 16:13:50 / Trukkurinn
»
17.09.2007 17:18:49 / Trukkurinn
Shit hvað ég er orðin lélegur bloggari bestaborðsíðan er eiginlega bara málið í dag....en alla veganna, búin að vera í fríi frá æfingum og keypti mér kort í ræktina. Því miður hef ég reyndar ekki getað verið eins dugleg að mæta eins og ég ætlaði mér. En ég meina halló ég er í fríi má alveg bæta á mig nokkrum kílóum og borða pínu óholt í nokkrar vikur á ári. En ekki örvænta ég er ekki orðin 100 kíló....svo núna má ég nánast ekkert reyna á mig í 10 daga og það er hræðilegt!!! Er alveg að mygla yfir því að koma heim klukkan fimm eftir vinnu og fer ekki á æfingu! Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Get ekki beðið eftir því að mæta á fyrstu föstudagslyftingarþrekæfinguna Boot camp hvað  En í þessu fríi mínu er ég búin að vera að hugsa mikið. Kannski of mikið hver veit. En ég veit ekki hvað ég á að gera með þetta ársfrí mitt. Ég er aftur (í 1000skiptið ) komin með æluna upp í kok af minni fimm ára dvöl í Hagkaup. Þannig að pælingin er að fara að finna sér eitthvað annað að gera og þá er bara spurningin hvar!! Er grasið eitthvað grænna hinu megin?? Svo get ég bara komið aftur í Hagkaup þegar ég byrja í Háskólanum. Fín vinna með skóla...... ....svo hefst átakið í oktober! Ætla að vera geggjað dugleg á æfingum og borða bara aðeins of holt. Lykilatriðið er svo náttúrulega að ekki snerta áfengi. Því leið og maður fer á eitt svakalegat fyllerí þá missir maður 3vikna púl í vaskin. Fann það alveg á Bikar eftir Þjóðhátíð! En það er svo sem ekkert svo hræðilegt þar sem að ég er að fara að byrja á pensinlínkúr og má ekki drekka meðan ég er á honum. Þannig að núna er fullkominn tími til þess að koma sér í form en ég er samt ekkert hætt að djamma! Enda ekki hægt þegar maður á þessar alka vinkonur hehe djók..... En jæja nóg af bulli í mér í bili.....
»
28.08.2007 20:06:19 / Trukkurinn
Jæja ég er komin í frí frá frjálsum og hef núna alveg endalausan tíma til þess að gera það sem mig langar til. Þetta er búið að vera mikið frjálsíþróttasumar og ég gæti skrifað endalaust áfram hvernig sumarið var hjá mér. Það var mjög erfitt en líka ógeðslega skemmtilegt. Ég bætti mig alvega og vil ég þakka þolinmóðum kærasta, fjölskyldu, vinkonum, vinnufélugum og yfirmönnum að hafa þolað mig. Seinasta mótið var núna um helfina á Laugum. Ég get nú reyndar ekki sagt það að ég hafi verið að bæta mig eitthvað mikið þar enda mikil þreyta komin og veðrið var líka ekkert það besta. Ég allaveganna bætti mig um tvo metra í spjótkasti, hehe sem ég er reyndar ömurleg í!! En ég fékk 3 gull, 2 silfur og 2 brons sem ég er bara nokkuð sátt með. Þrefaldur íslandsmeistari er ekkert svo slæmt og nei ég er ekki íslandsmeistari í kúluvarpi!! ÍR-ingarnir unnu svo heildarstigakeppnina á mótinu en það þýðir samt ekki að þau séu besta liðið. Þau eru bara flest og skrá alla í allt!!! Enda unnum við Fjörman litla liðið þau á Bikar sem er mót þar sem þú mátt bara senda einn keppanda í hverja grein. En nóg um frjálsar. Næst á dagsskrá er bestaborðsmatarboð sem ég get ekki beðið eftir J bara að segja ykkur það stelpur að ég ætla niðrí bæ og nota mín skilríki í fyrsta sinn, svala svala sko. Það eru líka átjánþúsund ár síðan ég fór seinast!!! Djammlausa sumarið 2007 var klárlega hjá mér. Þannig að þóttt þig séuð komnar með ógeð þá fer ég bara ein en ég er samt ekkert ógeðslega spennt yfir því. Oooo ég get ekki beðið!!!! Svo er ég byrjuð hjá hnikkjara eða kírópraktor. Skelli mér alltaf í kaffinu til hennar og læt hana braka aðeins í mér. Er strax farin að finna mun. Ekki eins stíf og svona. Samt er þetta alveg sjúklega vont. En jæja best að fara að finna hvaða föt ég eigi að vera í um helgina þar sem ég á ENGIN ný djammföt!!! Stelpur ekki eigið þið ekki eitthvað handa mér
»
02.08.2007 14:17:55 / Trukkurinn
»
27.06.2007 21:11:44 / Trukkurinn
Shit
hvað tíminn líður hratt það er að koma júlí! Finnst svo stutt
síðan ég, Sif og Sigrún fórum á Færeyskudagana í
fyrra...sem var aðeins of góð ferð en ég fer ekki
núna, frétti líka að þeir yrðu ekki. En ég er að fara á
Þjóðhátíð og ég get
eiginlega ekki beðið þá get ég líka loksins fengið mér smá
áfengi og meira að segja keypt það sjálf með mínu korti,
svala svala sko svo verður náttúrukega brjáluð
afmælisveisla þarna á laugardaginn þegar ég og Ragnheiður
höldum uppá tvítugs afmælið okkar saman. Allir þeir sem verða
þarna og þekkja mig er þeim auðvitað velkomið að koma hvar
sem ég nú verð þarna. En
það eina sem maður er að einbeita sér að núna er Landsmótið
sem er þar næstu helgi....ætla ég auðvtað að gera mitt besta
enda komin í alveg ágætis form. En ég er að fara að keppa í
200m, 400m, 400m grind, 100m grind, þrístökki og svo er ég í
4*100 og 1000m boðhlaupi þar sem ég mun annað hvort hlaupa
300 eða 400 metra. Bara svona að segja ykkur það þar sem þið
hafið svo geðveikan áhuga líka á frjálsum og í hverju ég er
að fara að keppa í en ef ykkur langar að kíkja á mig þá
meigið þið endilega láta sjá ykkur á Kópavogsvellinum.
Reyndar hafa fáir komið og horft á mig þar sem ég hata það,
en ætli ég verði ekki að fara að hætta þeirri vitleisu. En
þar sem maður er núna að æfa stíft þá borðar maður eins og
svín (sem ég gerði líka alveg örugglega áður). Veit ekki hvað
vinnufélagarnir halda um mig. Borða svona helmingi meira en
allir. Talandi um vinnuna þá er ég geðveikt sátt
að hafa fært mig í Smáralindina. Alltaf nóg að gera og það er
eitthvað sem ég fýla. Fór líka um daginn í Spöngina og váá
hvað þetta er lítið búð! Fékk bara innilokunarkennd.
En jæja
best að fara að skella sér í klakabað þar sem ég er að drepast í
fótunum.
Berglind
»
08.06.2007 20:27:41 / Trukkurinn
Góðan daginn það er
bara orðið fáránlega langt síðan ég bloggaði seinast, og þar af
leiðanda margt búið að gerast!! Sumarið komið og ég er að vinna
inni í fyrsta sinn á ævinni. En ég kvarta ekkert þar sem að ég
er lokuð inni í þessu kjarnorkuveri og sé lítið til sólar. Eina
sem ég tek eftir og get miðað við hvernig veðrið er er
klæðnaðurinn á viðskiftavinunum. Búin að vera að vinna 100%
vinnu í smáralind núna í tvær vikur og eru þessar vikur búnar að
líða fáránlega hratt...enda sést það á bloggleisinu. Hélt að
dagurinn mundi alltaf vera lengi að líða en fólkið er svo
skemmtilegt þarna að maður gleymir bara hvað tíminn er! Það er
samt alveg frerkar erfitt að vera að vinna frá 8-17 og svo beint
á æfingu sem er bara ávísun á þreyttar fætur.
Ég er ekki ennþá
búin að átta mig á því að ég er ekki að fara í Kvennó í haust
og bara ekki í skóla en það verður skrítið en ágætt að
gera það til þess að eiga fyrir 256 þúsund króna
skólagjöldum!! Alla veganna eins og er stefnir hugurinn minn
í HR eftir gott ársfrí frá skóla og kem fersk inn í
Háskólann. Finnst ég samt alltof lítil
ennþá...útskriftargaurinn var samt alveg æðislegur. Flott
veisla, góður matur og mikið að pökkum en þetta var
líka sjúklega erfið helgi! Var að keppa í sjöþraut alla
helgina og þurfti því að vakna eldsnemma á laugardagsmorgun
og keppa allan daginn. Fór svo beint heim og gerði mig til
fyrir útskriftarveisluna hjá Siggu. Áður en ég fór til hennar
sótti ég Lindu gellu og hvað haldið þig var ekki bar Strúní
svelgur komin í heimsókn frá London!! Keppti svo á
sunnudagsmorguninn og endaði í öðru sæti sem ég er nú bara
mjög sátt við en þreytunni í líkamanum get ég engan
vegin líst. Ætalði að djamm með stelpunum á sunnudeginum þar
sem ég var ekkert búin að fá að detta í það sem nýstúdent en
ég hafði ekki neina orku í það. Vignir eldaði góðan mat
handa mér og svo var að bara kósýgallinn
og stelpuhittingur. Svo er ég bara búin að vera að vinna og
að æfa eftir það...sé fram á það að ég djamma ekkert fyrr en
á Þjóðhátíð Jamm ég er að fara á Þjóðhátíð fékk flugmiða í
útskriftargjöf hlakka bara of mikið til ég og
Ragnheiður ætlum líka að halda uppá tvítugsafmælið okkar
saman þarna þannig að það verður bara brjálað
partý.....Ragnheiður ég treysti þér að gera Eyjar reddy þegar
ég kem 
En jæja ég er
hætt að tjá mig hérna...reyni nú að vera duglegri að blogga
ef ég nenni 
Berglind


»
19.05.2007 14:29:38 / Trukkurinn
Ég var búin að
blogga rosa flottu bloggi að mínu mati en rakst í einhvern takka
og það hvarf. Ég ætla aldrei að læra það að skrifa bloggin fyrst
upp í Word. Þannig að ég ætla bara að koma með punktafærslu frá
því helsta sem ég var að segja í þessu skemmtilega bloggi sem
hvarf.
-
Kláraði seinasta
prófið mitt í Kvennó á miðvikudaginn.
-
Fer svo og næ í
einkunirnar á þriðjudaginn og svo beint þaðan á
útskriftaræfingu. Spennandi!
-
Á eftir að finna
mér jakka til þess að vera í. Gangi mér vel! Enda örugglega á
því að fá mér sérsaumaðann! Stundum hata ég að vera
frjálsíþróttaköggull.
-
Maturinn í
útskriftinni mun vera mjög kolvetnisríkur þar sem ég er að
fara að keppa sömu helgi í sjöþraut.
-
Ég er sem sagt
ekki að fara á sveitt djamm með
stúdentshúfuna.
-
Ætli ég fari ekki
bara með MR-ingunum þegar þeir útskrifast í júní

-
Mér finnst ég
eiga eftir að gera svo mikið en ég veti samt ekki hvað það
er. Er alveg búin að ráða fólk til þess að sjá um veisluna.
Mamma sér um skreitingar og Vignir um matinn

-
Fór án efa á eitt
sveittasta próflokadjamm á miðvikudaginn! Dönsuðum allan
tímann!
-
Það var aðeins OF
gaman!
-
Fór í skýrn á
fimmtudaginn hjá lilta sæta frændanum mínum og á
frjálsíþróttarveislu. Fékk þar viðurkenningu og hrós frá
þjálfaranum.
-
Ég veit ekki hvar
ég væri án nýja sæta bílsins. Hann er næstum
fullkominn!
-
Búinn að selja
hinn. Smá sökknuður. En á núna alveg ágætlega nóg af peningum
hver kemur með mér til USA að versla!
-
Stelpur ég get
ekki hætt að hugsa hvað það var gaman á miðvikudaginn og hvað
pizzan var GÓÐ.
-
Fór í gær í
fyrsta sinn á Laugardalsvöllin eftir breytinguna. Shit hvað
þetta er stór stúka!
-
Er búin að taka
ákvörðun og frjálsar verða nr. 1, 2 og 3 hjá mér í sumar.
Þannig að það verður lítið djamm á mér. Ég verð alla veganna
frekar oft á bí

-
Sem er pínu
svekkjandi þar sem að ég er loksins að geta farið inn á mínum
skilríkjum. Hehe
-
Þar að fara að
drulla mér í klakabað. Þessi þreyta í fótunum er ekkert að
fara.
-
Ég get
ekki beðið eftir því að Stúní Tansystir komi aftur heim til
Íslands. Sakna hennar aðeins of mikið!

Berglind
»
15.05.2007 13:58:45 / Trukkurinn
»
04.05.2007 20:47:37 / Trukkurinn
»
20.04.2007 16:37:28 / Trukkurinn
ÉG ER BRJÁLUÐ!!! ÞAÐ ERU 4 DAGAR EFTIR AF SKÓLANUM OG
KENNARARNIR ERU AÐ MISSA SIG Í RITGERÐUM OG PRÓFUM!!!!!!!!
Þannig að ég sé fram á það að næsta vika verður
ömurleg!! Gaman að láta síðustu vikuna sína í mentó vera þannig! En
það er víst ekki hægt að kvarta. Ég er samt aðalega pirruð út í
einn kennara þar sem að hún ætlast til að við skilum 4-6 bls.
ritgerð úr bók sem við erum að lesa, klára og svo kynna heimasíðuna
okkar (sem er lokaverkefnið) fara í heimsókn á einhvern
vinnustað(utan skóla) og svo var að bætast önnur ritgerð frá henni
sem á að vera um mynd sem við erum að fara að horfa á í tíma á
þriðjudaginn!!! ER HÚN GEÐVEIK EÐA ER ÉG BARA SVONA MIKILL
AUMINGI???? Tek það fram að ég er líka að fara í próf úr
örðum fögum hvern einasta dag í næstu viku..... Vignir þú getur
verið nóg í tölvunni því ég verð greinilega ekkert heima heppinn
þú....
En ég er farin á æfingu og ætla að nýta
þessa reiði mína í að æfa eins og fáviti!!!
Sé ykkur bara í maí bíst ég við!! 
Berglind
»
13.04.2007 14:25:46 / Trukkurinn
»
01.04.2007 03:15:20 / Trukkurinn
»
26.03.2007 13:56:48 / Trukkurinn
♥ ♥
♥
Loksins síðasta vika fyrir
páska byrjuð. Reyndar er ég að fara í 4 próf í henni. En það
er samt svo stutt í páskafríið. Sem mun reyndar nýtast í æfingar og
að lesa bók, skirfa ritgerðir og búa til heimasíðu. Þannig að ég
verð mjög líklega ekki workaholic. Það sem er líka að gerast
skólanum í vikunni að það eru kosningar um hverjir verða í stjórn
og nefndum. Það ætti samt ekki að skifta mig einhverju máli því ég
verð ekki þarna á næsta ári en matsalurinn er því troðfullur af
krökkum sem eru að bjóða sig fram og múta manni með allskonar mat
og dóti. Eins og vínabrauðum, kleinuhringjum, smokkum, gosi, nammi,
sleipiefnum, dagkremum, pizzum, brúnkuklútum o.fl. Þannig að ég
þarf ekki að hfa áhyggjur með nesti í vikunni.....annars langar mig
ekki á æfingu á eftir. Það er svo stutt þangað til þau fari og
auðvitað orðin sjúklega spennt. Er að pæla að mæta 3 tímum seinna
og vera bara ein, uhhuhu ég á svo mikið bátt, hehe. Hefði ekkert á
móti því að komast aðeins út og fá smá
brúnku. væri
ekkert á móti því að fá þessa brúnku
aftur
Fór í
tvítugsafmæli til Evu á Hverfis um helgina. Brjálað partý
þar. Var samt bara á brumma því ég var að fara að vinna
morguninn eftir. Eina sem var ógeðsleg var þessar bölvuðu
reykingar sem var á fólkinu. Sveið ekkert smá í augunum og
þurfti að fara í sturtu þegar ég kom heim um
kvöldið. Svo var bara mætti ég fersk í vinnuna með mitt
fallega hár. Blautt hár + beint að sofa = hrillingur. En ég
nennti ekki að reyna að gera eitthvað við það. Er hvort sem
er svo sjúklega heit skiluru Í gær var svo matur heima hjá
mér með fjölskyldunni mínus Grétar. Svo bara rólegt þangað
til að stelpurnar komu til mín að gera jarðfræðiverkefnið. Já
meðan ég man þá erum við með síðu saman. Held að þetta sé
fjórða síðan sem ég er með einhverjum í....alla veganna þá er
slóðin www.blog.central.is/babylotions
klárlega heitasta síðan í dag.....annars eru
breytingar væntanlegar hjá mér og mun ég þurfa að venjast
nýju umhverfi. Bíð bara spennt eftir að það gerist en er samt
alveg pínu stressuð. Æi ég er svo mikill
kjáni. En ég er farin að gera mig til fyrir
stressið....
»
18.03.2007 17:09:39 / Trukkurinn
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
|